F.h. Eignasjóðs Reykjavíkurborgar, Veitna, Ríkisútvarpsins, Mílu og Gagnaveitu Reykjavíkur óska eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Útvarpsreitur við Efstaleiti. Jarðvinna. Útboð nr. 13779
Um er að ræða jarðvinnu vegna gatnagerðar, gerð nýrra bílastæða, og lagningu veitulagna á lóð Ríkisútvarpsins við Efstaleiti 1, ásamt þverunum Háaleitisbrautar og Efstaleitis.
Verkið er áfangaskipt og mun standa yfir í tvö og hálft ár.
Helstu magntölur í útboðsverki þessu eru áætlaðar:
Verkið er áfangaskipt og mun standa yfir í tvö og hálft ár.
Helstu magntölur í útboðsverki þessu eru áætlaðar:
- Gröftur 18.000 m3
- Burðarfylling 12.000 m3
- Malbikun 10.500 m²
- Fráveitulagnir Ø150 – Ø250 1.300 m
- Kaldavatnslagnir Ø63 – Ø400 1.000 m
- Snjóbræðslulagnir Ø25 5.500 m
- Hitaveitulagnir DN25 – DN150 tvöfalt kerfi 750 m
- Hitaveitulagnir DN700 einfalt kerfi 400 m
- Raflagnir 2.800 m
- Fjarskiptalagnir/ídráttarrör 6.700 m
Lokaskiladagur verksins er 1. maí 2019.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 3.000, frá og með þriðjudeginum 6. september 2016, í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík,
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 27. september 2016, kl 10:00, í Borgartúni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustver Reykjavíkurborgar.