Miklar framkvæmdir eru áformaðar á Keflavíkurflugvelli á næstu árum og taka þær bæði til flugvallarins sjálfs sem og flugstöðvarbyggingarinnar. Áætlað er að áformaðar framkvæmdir á þessu ári muni skapa ríflega 240 ársverk, bein og óbein.
Frá því var greint í Morgunblaðinu sl. laugardag að kostnaður við framkvæmdir sem nauðsynlegt er að ráðast í á næstu 15 árum er talinn nema um 170 milljörðum króna. Þar af slagar áætlaður kostnaður við framkvæmdir sem áformaðar eru á þessu ári upp í allt að 12 milljarða króna.
Fulltrúum Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi voru kynnt áformin á fundi með Isavia um miðjan sl. mánuð.
Heimild: Mbl.is












