Home Fréttir Í fréttum Hulda ráðin til Basalt arkitekta

Hulda ráðin til Basalt arkitekta

22
0
Hulda kemur til Basalt með víðtæka reynslu á sviði stefnumótunar, viðskiptaþróunar og samskipta. Ljósmynd: Aðsend mynd

Basalt arkitektar hafa ráðið Huldu Hallgrímsdóttur í nýja stöðu stefnu- og viðskiptaþróunarstjóra.

Basalt arkitektar hafa ráðið Huldu Hallgrímsdóttur í nýja stöðu stefnu- og viðskiptaþróunarstjóra en hún kemur til Basalt með víðtæka reynslu á sviði stefnumótunar, viðskiptaþróunar og samskipta, bæði úr opinbera geiranum og alþjóðlegu umhverfi.

Arkitektastofan var stofnuð árið 2009 og hefur á undanförnum árum komið að fjölmörgum verkefnum, þar á meðal Bláa Lóninu, Silica Hóteli, GeoSea, Lava Centre, Vök Baths og Skógarböðunum.

Hulda kemur úr Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem hún starfaði sem teymisstjóri á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og sinnti þar stefnumótun, atvinnu- og borgarþróun í samstarfi við stjórnendur borgarinnar og fjölbreytta hagaðila.

Þar áður starfaði Hulda við viðskiptaþróun og samskipti hjá Bjarke Ingels Group (BIG) og arkitektastofunni Third Nature, auk þess sem hún hefur starfað hjá Dansk Arkitektur Center við miðlun og kynningu arkitektúrs.

„Við erum afar ánægð með að fá Huldu til liðs við Basalt. Hún býr yfir dýrmætri reynslu og skýrri sýn sem mun styrkja stefnumótun stofunnar, viðskiptaþróun og tengsl hennar við innlenda sem erlenda samstarfsaðila,“ segja eigendur Basalt arkitekta.

Hulda er menntuð í stjórnun skapandi fyrirtækja og markaðs- og viðskiptasamskiptum frá Copenhagen Business School og hefur sterkan skilning á því hvernig skapandi fyrirtæki byggja upp sjálfbæra starfsemi, skýra stefnu og sterka ímynd til langs tíma.

„Basalt er stofa með sterka faglega sjálfsmynd og skýran metnað til framtíðar. Ég hlakka til að vinna að því að þróa starfsemi stofunnar áfram, styrkja stöðu hennar og skapa ný tækifæri, bæði hérlendis og á alþjóðamarkaði, í nánu samstarfi við eigendur og starfsfólk,“ segir Hulda.

Heimild: Vb.is