Vegagerðin býður hér með út styrkingu, breikkun og klæðingu á 7,4 km kafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð, frá Drumboddsstaðavegi að Hrunamannavegi.
|
Skeringar
|
95.000 m3
|
|
Þar af bergskeringa
|
61.000 m3
|
|
Fláafleygar
|
12.700 m3
|
|
Fyllingar
|
19.000 m3
|
|
Styrktarlag 0/63
|
22.000 m3
|
|
Burðarlag 0/22
|
12.300 m3
|
|
Tvöföld klæðing
|
53.900 m2
|
|
Malarefni í klæðingu
|
8.100 m3
|
|
Frágangur fláa
|
81.800 m2
|
|
Girðingar
|
2.300 m
|
|
Ónothæfu efni losað og jafnað
|
15.400 m3
|
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. ágúst 2027.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 12. janúar 2026.
Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. janúar 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.












