Betri samgöngur ohf. óska eftir upplýsingum frá áhugasömum þjónustuaðilum sem geta útvegað trjágróður fyrir Borgarlínu.
Um er að ræða annars vegar framleiðslu og afhendingu á um 1.700 trjám í gróðrarstöð á árunum 2026-2029 þar sem þau verða í tímabundinni umsjá í um 2 ár.
Hins vegar er um að ræða flutning þessara trjáa á árunum 2027/2028-2031 frá gróðrastöð á endanlega staðsetningu meðfram Borgarlínu, gróðursetningu og umhirðu í allt að 2 ár.
Óskað er að áhugasamir aðilar kynni sér markaðskönnunarskjal og veiti þær upplýsingar sem þar er óskað.
| Auglýst: | 08.12.2025 kl. 09:50 |
| Skilafrestur | 09.01.2026 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 09.01.2026 kl. 14:00 |
Um er að ræða upplýsingar sem notaðar verða fyrir útboð á síðari stigum. Markaðskönnunarskjal er að finna á útboðsvef Betri samgagna ohf.












