Home Fréttir Í fréttum Ein stærsta framkvæmd næstu ára í Hveragerði er bygging á nýjum leikskóla

Ein stærsta framkvæmd næstu ára í Hveragerði er bygging á nýjum leikskóla

302
0

Ein stærsta framkvæmd næstu ára í Hveragerði er bygging nýs sex deilda leikskóla sem rísa mun neðan við Heiðarbrún. Verður húsið um 1.000 m2 og með tilkomu þess mun gefast möguleiki á að börn frá eins árs aldri fái tilboð um leikskólavistun. Jafnframt mun leikskólinn Undraland breytast og væntanlega hýsa frístundaskóla bæjarins og þar með eldri börn.

<>

Jarðvegsvinna er hafin og er það fyrirtækið Arnon ehf sem er í eigu Guðmundar Arnars Sigfússonar sem sér um hana. Útboð húss og lóðar mun fara fram á næstu vikum.

Ákafi verktaka í að hefja framkvæmdir var svo mikill að jarðvegsframkvæmdir voru komnar vel á veg þegar uppgötvast að það gleymdist að taka fyrstu skóflustunguna. Mörgum þótti það heldur verra því vaninn er að gera það með viðhöfn og bjóða til þess fjölmiðlum og fyrirmönnum. En þess í stað var ákveðið að elstu börn leikskólans Undralands myndu koma og hjálpa Guðmundi Arnari að moka ofan í holuna stóru sem nú hefur birst í móanum.

Það var fríður hópur barna og starfsmanna sem mætti með skóflur og góðan vilja niður fyrir Heiðarbrún í dag og mokaði í gríð og erg áður en horft var á “gröfubíó” en þá lék Guðmundur Arnar listir sínar á stóru gröfunni fyrir börnin.

Það var afar ánægður hópur sem rösklega gekk aftur til baka til gamla leikskólans síns hafandi lagt sitt af mörkum til að nýr leikskóli myndi rísa í Hveragerði.

Heimild: Hveragerdi.is