F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Sæborg. Viðbygging og endurbætur. – Verkfræðihönnun, EES útboð nr. 16214.
Lauslegt yfirlit yfir verkið : Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar leitar að hönnunarteymi til að sjá um verkfræðihönnun fyrir 4 deilda viðbyggingu við leikskólann Sæborg við Starhaga 11, 107 Reykjavík. Viðbyggingin er alls 1118 m2 og er í henni auk fjögurra nýrra deilda fjölnotasalur, fataklefi og starfsmanna- og tæknirými. Auk viðbyggingarinnar felst hönnunin í endurbótum núverandi leikskóla.
Hönnunin og ráðgjöfin nær til eftirfarandi fagsviða:
- Burðarvirki og grundun
- Lagnir og loftræsing
- Rafkerfi og lýsing
- Brunahönnun.
- Hljóðhönnun
- BIM stjórnun
- Verkefnastjórn
- Byggingareðlisfræði
- Svansvottunarfulltrúi
Áætluð lok : 31.janúar 2028.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00:, 6. nóvember 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 9. desember 2025.












