Home Fréttir Í fréttum 11.11.2025 Borgar­fjörður eystri, endur­bygg­ing Lönd­unar­bryggju 2025

11.11.2025 Borgar­fjörður eystri, endur­bygg­ing Lönd­unar­bryggju 2025

19
0
Höfnin á Borgarfirði eystri. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Hafnir Múlaþings óska eftir tilboðum í verkið „Borgarfjörður eystri, endurbygging Löndunarbryggju 2025“.

Helstu verkþættir eru:

  • Brjóta og fjarlæga gamla þekju um 330 m2.
  • Jarðvinna fyrir landvegg, undirstöðu og þekju.
  • Steypa 34 m landvegg, 8 undirstöður og 95 m2 þekju
  • Reka niður 27 bryggjustaura úr harðviði.
  • Smíði á um 300 m² af bryggju úr harðviði.
  • Uppsetning á 50 stk DD250 þybbum á bryggju.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með miðvikudeginum 22. október 2025.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. nóvember 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og  heildartilboðsupphæð.