Home Fréttir Í fréttum Hveragerði: Eden lóðin skipulögð fyrir íbúðir o.fl.

Hveragerði: Eden lóðin skipulögð fyrir íbúðir o.fl.

197
0
Hveragerði

Eden lóðin er 11.600m2 að stærð og því ljóst að þar má með auðveldum hætti koma fyrir bæði íbúðum og verslun og þjónustu sem samræmst getur áherslum bæjarins varðandi uppbyggingu á þessu sviði.

<>

Eftirfarandi var einróma samþykkt á fundi bæjarráðs þann 18. ágúst:

“Að mati bæjarráðs er nú alvarlegur skortur á húsnæði í bæjarfélaginu m.a. fyrir ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði og ennfremur fyrir leigjendur. Bæjarráð samþykkir því að fela skipulags- og mannvirkjanefnd að hefja nú þegar vinnu við breytingu á aðalskipulagi, samhliða breytingu á deiliskipulagi, sem tæki til reitsins er afmarkast af Reykjamörk, Þelamörk, Grænumörk og Austurmörk með það að markmiði að þar megi byggja íbúðir sem kæmu til móts við það sjónarmið sem að framan er rætt og falla myndu vel að núverandi byggð og þeirri notkun sem er á reitnum. Ekki yrði tekið fyrir uppbyggingu á verslun, þjónustu og landbúnaði á reitnum enda myndi slíkt samræmast byggðinni.”

Eden lóðin er 11.600m2 að stærð og því ljóst að þar má með auðveldum hætti koma fyrir bæði íbúðum og verslun og þjónustu sem samræmst getur áherslum bæjarins varðandi uppbyggingu á þessu sviði.

Lögð er áhersla á að með þessari ákvörðun er ekki á nokkurn hátt verið að rýra möguleikana á uppbyggingu ferðatengdrar þjónustu í bæjarfélaginu en lóðir sem kenndar hafa verið við Tívolíið sem var og hét eru enn lausar til uppbyggingar.

Heimild: Hveragerdi.is