Home Fréttir Í fréttum Vesturbæjarlaug lokað enn og aftur

Vesturbæjarlaug lokað enn og aftur

12
0
Vesturbæjarlaug. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vesturbæjarlaug hefur verið lokað að hluta vegna flögnunar á málningu.

Þetta segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

mbl.is greindi frá því fyrir um tveimur vikum að málning í laugarkari væri aftur farin að flagna einungis um mánuði eftir að gölluð málningarvinna sumarsins var leiðrétt.

Laugarkarið lokar tímabundið

„Reykjavíkurborg hefur, í samráði við starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins, tekið ákvörðun um að loka laugarkari Vesturbæjarlaugar tímabundið á meðan unnið er að lausn á flögnun á málningu,“ segir í tilkynningunni.

„Ráðist var í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á sundlauginni í sumar með það að marki að bæta aðstöðu gesta og endurnýja eldri mannvirki. Fljótlega eftir að laugin var opnuð aftur fór að bera á að málning flagnaði af botni laugarinnar. Var lauginni þá lokað aftur og ráðist í úrbætur. Sú vinna skilaði því miður ekki tilætluðum árangri og því er nauðsynlegt að loka laugarkarinu að nýju. Ekki er vitað hversu lengi þessi lokun mun standa yfir.“

Heitir pottar, eimbað og búningsklefar verða þó áfram opnir á meðan unnið er að lausn.

Nýlega sagði deildarstjóri hjá viðhaldsdeild Reykjavíkurborgar líftíma sundlaugabotns Vesturbæjarlaugar kominn að endamörkum.

Heimild: Mbl.is