Sveitarfélagið Árborg auglýsir til sölu byggingarétt fyrir íbúðarhúsnæði. Um er að ræða 5 parhúsalóðir fyrir alls 10 íbúðir. Stærð lóða er á bilinu 1.157-1.200 m2. Um er að ræða vel staðsettar lóðir nærri sterkum þjónustukjörnum.
Leitað er að kauptilboðum í lóðirnar frá einstaklingum og/eða lögaðilum sem hyggjast byggja íbúðir í samræmi við deiliskipulag svæðisins. Svæðið er hluti af uppbyggingarsvæði á landi Bjarkar sem liggur sunnan Suðurhóla og meðfram Eyravegi.
Lóðirnar sem um ræðir eru Móstekkur 101-103, 105-107, 109-111, 113-115 og 117-119. Lóðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum fylgi gögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour (tengill hér að neðan) innan auglýsts skilafrest, sem er kl. 13:00
föstudaginn 31. októberber 2025.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn.
Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.