Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Vindmyllur á traustum grunni

Vindmyllur á traustum grunni

15
0
Starfsmenn Ístaks unnu sleitulaust í 14 klukkustundir við að steypa fyrstu undirstöðuna. Landsvirkjun samdi við Ístak um að vinna verkið. Ljósmynd/Landsvirkjun

Miðvikudaginn 17. september var stigið mikilvægt skref í uppbyggingu Vaðölduvers þegar Ístak steypti fyrstu undirstöðuna fyrir vindmyllurnar 28 sem reistar verða á svæðinu.

Ákveðið var að byrja á að steypa undirstöðu fyrir vindmyllu númer 13. Þrátt fyrir númerið gekk steypan afar vel og tók um 14 klukkustundir að ljúka verkinu, að því er fram kemur á vef Landsvirkjunar.

Í undirstöðuna fóru um 70 tonn af stáli og rúmlega 400 rúmmetrar af steypu.

Þetta þýðir að í allar undirstöðurnar munu fara 1.960 tonn af stáli. Ekki veitir af sterkum undirstöðum því að hámarkshæð hverrar vindmyllu með spaða er 150 metrar.

Heimild: Mbl.is