Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarbyggð ganga vel

Framkvæmdir við nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarbyggð ganga vel

28
0
Mynd: Borgarbyggð

Framkvæmdir við nýtt fjölnota íþróttahús í Borgarbyggð ganga vel og samkvæmt áætlun. Stálgrind er að rísa þessa dagana og komin er ágætis mynd af verkinu. Ístak og Efla leggja áherslu á að framkvæmdirnar gangi vel og öryggi allra sé tryggt.

Mynd: Borgarbyggð

Þegar framkvæmdir hófust voru settar upp auknar öryggisráðstafanir fyrir gangandi vegfarendur vegna aukinnar þungaumferðar. Öryggisráðstafanir þessar hafa einnig gengið vel, og virðist sem verktakar og íbúar séu samstíga þegar kemur að öryggi á svæðinu.

Mynd: Borgarbyggð

Húsið verður einangrað og upphitað og mun veita sveitafélaginu nútímalega íþróttaaðstöðu sem mun nýtast bæði börnum og fullorðnum til æfinga og viðburða.
Áætlað er að húsið verði tekið í notkun haustið 2026, sem kemur til með að vera mikil lyftistöng fyrir íþróttastarf og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu.

Heimild: Borgarbyggð