Fasteignafélagið Heimar og Smáralind hafa skrifað undir samning við þrettán veitingaaðila um opnun veitingastaða á nýju veitingasvæði í austurenda Smáralindar sem opnar í haust.
Í tilkynningu segir að með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingarflóra Smáralindar með fjölbreyttara úrvali veitinga sem höfði til hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá fólki í leit að fljótgerðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun.
„Veitingasvæðið verður mikil lyftistöng fyrir þær tugþúsundir sem búa og starfa í kringum Smáralind og verður kærkomin viðbót í veitingaflóru svæðisins, hvort sem er á daginn eða á kvöldin.
Nýir og þekktir veitingastaðir undir sama þaki
Af þeim þrettán veitingastöðum sem opna á nýja veitingasvæðinu eru tíu nýir í Smáralind og nokkrir sem hingað til hafa aðeins verið í miðbæ Reykjavíkur. Þá kemur veitingastaðurinn Hjá Höllu, sem margir þekkja frá Grindavik og flugstöðinni, auk tveggja alveg nýrra veitingastaða,“ segir í tilkynningunni.
Veitingastaðirnir sem verða hluti af nýja veitingasvæðinu í Smáralind eru:
- Djúsí Sushi
- Funky Bhangra
- La Trattoria
- Hjá Höllu
- Fuego
- Neo pizza
- Yuzu borgarar
- Gelato ís
- Sbarro
- Serrano
- Subway
- Top wings
- 5 Spice by XO
Haft er eftir Baldri Má Helgasyni, framkvæmdastjóra viðskipta hjá Heimum, að að félagið hafi fengið til liðs við sig „farsælustu veitingaaðila landsins til að sjá um matarupplifunina á þessu nýja svæði í Smáralind“.

Heimar
„Svæðið sjálft er hannað af Javier Bootello og hans fólki hjá Basalt arkitektum og hugsunin er að þarna geti fólk komið saman, notið góðs matar og átt huggulega stund í fallegu umhverfi hvort sem það er í hádeginu eða á kvöldin,” segir Baldur Már.
Búist er við að framkvæmdum ljúki á næstu vikum og að hægt verði að opna nýju veitingastaðina um mánaðarmótin október/nóvember.
„Opnun veitingasvæðisins markar tímamót í sögu Smáralindar og setur nýjan mælikvarða á fjölbreytni og gæði veitingaframboðs í verslunarmiðstöðvum hér á landi,“ segir í tilkynningunni.
Heimild: Visir.is