Framkvæmdasýslan Ríkiseignir (FSRE), kt. 510391-2259, fyrir hönd Vesturbyggðar kt. 510694-2369, óskar eftir tilboðum í ”Ofanflóðavarnir Patreksfirði – Bráðavarnir Stekkagili“
Verkið sem óskað er tilboða í felur í sér endurmótun og rofvörn farvegar neðan Stekkagils á Patreksfirði. Verkið felst í lagfæringu hleðsla rofvarnar, lagningu ræsa, færslu lagna, frágang gatna og lagna, framkvæmdasvæðis og efnishauga.
Um er að ræða almennt útboð að ræða eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) og grein 1.2.2 í ÍST 30:2012. Útboð þetta er aðeins auglýst innanlands.
Lög um opinber innkaup má nálgast á heimasíðu Alþingis á slóðinni: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html
Athugið að þar sem útboðið er einungis auglýst innanlands er ekki hægt að leita að útboðinu á TendSign.is, smellu á Skoða nánar til að finna útboðið
Sjá nánar tæknilýsingu/kröfulýsingu í útboðsgögnum.
Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi FSRE, TendSign.is.
Leiðbeiningar varðandi skráningu og skil tilboða er að finna á hér.
Útboðsgögn afhent: | 19.08.2025 kl. 14:06 |
Skilafrestur | 02.09.2025 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 02.09.2025 kl. 13:00 |