Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 28.08.2025 Sementsreitur – Gatnagerð og lagnir – 2. áfangi

28.08.2025 Sementsreitur – Gatnagerð og lagnir – 2. áfangi

9
0
Akranesbær. Sementsreitur.

Akraneskaupstaður í samvinnu við Veitur, Ljósleiðarann og Mílu, óskar eftir tilboði í gatnagerð, jarðvegsskipti og lagnir á Sementsreitnum á Akranesi.

Um er að ræða jarðvegsskipti undir götur, lagningu veitukerfa og fjarskiptalagna í vesturhluta reitsins og lagningu hitaveitu og raflagna í austurhluta reitsins.

Einnig að fjarlægja hluta af steyptum byggingum á Mánabraut 20, þ.e. verkstæði og dreifistöð.

Nokkrar stærðir í verkinu: Gröftur gatna 10.000 m3, Fylling gatna 18.000 m3, Mannvirki 4.000 m3, Fráveitulagnir 760 m, Kaldavatnslagnir 720 m, Hitaveitulagnir 1.600 m.

Verkið er með 2 áfangaskilum: Niðurrif húss 15. desember 2025, Lagnir í austurhluta 15. maí 2026, og verklok eru 25. september 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi frá miðvikudeginum 6. ágúst 2025 í gegnum útboðsvef á slóðinni https://akranes.ajoursystem.net.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 28. ágúst 2025.  Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Sjá frekar.