Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 31.07.2025 Malbiks­fram­kvæmd­ir á Norður­svæði 2025

31.07.2025 Malbiks­fram­kvæmd­ir á Norður­svæði 2025

19
0
Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í malbikun,  malbiksviðgerðir og þurrfræsingu  á vegum á Norðursvæði 2025.

Um er að ræða þurrfræsingu og malbikun á Hlíðarfjallsvegi.  Yfirlögn með malbiki í Bakkaselsbrekku, á Blönduósi og við Laxá Þingeyjasveit.  Gróffræsun á malbiki og yfirlögn  ásamt viðgerðum á Akureyri. Verktaki leggur til allt malbik og burðarlagsefni 0/22mm í styrkingar Hlíðarfjallsvegi,  áætluð þykkt burðarlags 10 cm. Gera má ráð fyrir einhverjum breytingum.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Þurrfræsing Hlíðarfjallsvegi
6.160 m²
Burðarlagsefni 0/22
620 m³
Slitlagsmalbik Hlíðarfjallsvegi á möl 60mm
6.160 m²
Slitlagsmalbik Bakkaselsbrekku 60mm
29.000 m²
Malbiks viðgerðir á Akureyri
100 m²
Gróffræsun og malbikun 45mm á Akureyri
1.100 m²
Malbikun 45mm á Blöfnuósi
3000 m²
Malbikun 45mm við Laxá Þingeyjasveit
630 m²

Verklok eru 15. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafrænt í útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 21.  júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn  31. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.