Veitur ohf. óskar eftir tilboð í verkið: „Athafnasvæðið á Hvanneyri – 1. áfangi“
Verkið er í aðalatriðum fólgið í því, að verktaki skal leggja nýja stofna vatns- og hitaveitu frá Fjósflötum að nýju athafnasvæði við Melabraut auk framlengingar á stofnlögn fráveitu við athafnasvæðið.
Að auki á að leggja lágspennustrengi í beran skurðbotn og sanda yfir, leggja ídráttarrör í skurði ásamt því að verja eldri lagnir. Verktaki skal grafa skurði fyrir fráveitulagnir, kaldavatnslagnir, hitaveitulagnir og raflagnir.
Í skurðina skal verktaki sanda undir og yfir rör og strengi, leggja lagnir, strengi, rör og ídráttarrör, fylla yfir og ganga frá. Jafnframt skal hann grafa fyrir og annast uppsetningu á brunnum, lokum, spindlum og skápum.
Útboðsgögn afhent: | 08.07.2025 kl. 11:00 |
Skilafrestur | 30.07.2025 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 30.07.2025 kl. 14:00 |
Sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.