Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vegrið á Austursvæði.
Helstu magntölur eru:
- Bitavegrið, uppsetning 620 m
- Víravegrið 2100 m
- Endafrágangur bitavegriðs, uppsetning 11 stk.
- Endafrágangur víravegriðs 19 stk.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. desember 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 13-15 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 2. ágúst 2016. Verð útboðsgagna er 2000 kr.
Skal skila tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. ágúst og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.