Home Fréttir Í fréttum Nýr leikskóli afhentur í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ

Nýr leikskóli afhentur í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ

31
0
Mynd: Kanon arkitektar

Í síðustu viku afhenti verktakafyrirtækið Alefli ehf lykil að nýjum leikskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ.

Leikskólinn Sumarhús tekur formlega til starfa nú á haustdögum. Kanon arkitektar sáu um arkitektahönnun bygginga, aðkomusvæða og leikskólalóðar.

Mynd: Kanon arkitektar

Meðhönnuðir voru Teknik verkfræðistofa ehf, TKM Hönnun ehf, Örugg verkfræðistofa ehf og Hljóðvist. Umsjón og eftirlit: VSÓ Ráðgjöf ehf.

Nánar verður fjallað um verkefnið á heimasíðu Kanon arkitekta.

Heimild: Facebooksíða Kanon arkitekta