Home Fréttir Í fréttum 12.08.2025 Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Reykjavík

12.08.2025 Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða í Reykjavík

20
0
Mynd: Reykjavík.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Reykjavík:

Lauslegt  yfirlit yfir verkið : 
Verkið felst í snjóhreinsun og hálkueyðingu göngu- og hjólaleiða í Reykjavík. Seljandi leggur til menn og tæki til verksins og framkvæmir verkið eftir fyrirmælum frá eftirlitsmanni kaupanda og í samræmi við ákvæði og lýsingar í útboðslýsingu og þjónustuhandbók USK.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is  frá kl. 13:00, 27. júní 2025.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 12. ágúst 2025.