Home Fréttir Í fréttum Byggt hjá Háteigskirkju

Byggt hjá Háteigskirkju

34
0
Byggðin þétt við Sjómannaskólann í Reykjavík. mbl.is/Baldur

Fram­kvæmd­ir eru hafn­ar við fjöl­býl­is­hús með 60 íbúðum á Há­teigs­vegi 35 í Reykja­vík. Hús­in verða gegnt safnaðar­heim­ili Há­teigs­kirkju og vest­an við Sjó­manna­skól­ann.

Verk­taka­fyr­ir­tækið Já­verk fer með upp­bygg­ing­una en verið er að grafa grunn hús­anna.

Gylfi Gísla­son fram­kvæmda­stjóri Já­verks seg­ir verið að grafa fyr­ir grunni. Það verði ekki tíma­frekt enda sé eng­inn bíla­kjall­ari. Áformað sé að hefja upp­steypu í haust en stefnt sé að af­hend­ingu íbúða eft­ir 18-24 mánuði.fyrstu

Gylfi seg­ir íbúðirn­ar, eigna­r­í­búðir, hugsaðar sem hag­kvæmt hús­næði fyr­ir fyrstu kaup­end­ur. Verðið verði því hag­kvæm­ara en geng­ur og ger­ist en dregið verði úr hópi um­sækj­enda.

Heimild: Mbl.is