
Skóflustunga að fimm svansvottuðum raðhúsum við Axlarás 16 – 22 í Hafnarfirði var tekin nýlega.
Hafnarfjarðarbær úthlutaði Búseta byggingarreit undir fimm raðhús á svæði sem ber heitið Ásland 4. Um er að ræða raðhús á einni hæð og er hvert raðhús um 150 m2. Ístak mun sjá um byggingu húsanna fyrir Búseta og eru það M11 arkitektar sem eiga heiðurinn af hönnuninni. Framkvæmdir eru hafnar og er gert ráð fyrir að húsin verði til afhendingar í lok árs 2026.
Ásland 4 er nýjasta uppbyggingarsvæðið í Hafnarfirði og þar verður einkum að finna lágreistar sérbýlisíbúðir, einbýli, par- og raðhús. Áhersla er lögð á að hverfið tengist innbyrðis með grænum svæðum eða trjábeltum.
Í þessum beltum verða göngustígar og fjöldi af gróðursettum trjám sem mynda skjól og náttúrutengsl. Í skipulagi og hönnun á hverfinu er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði.

Gert er ráð fyrir 3–4 deilda leikskóla í hverfinu. Stutt er í útivistarsvæðin við Hvaleyrarvatn auk skógræktar og fjölbreyttrar náttúru víðsvegar í upplandi bæjarins. Eitt af aðalmarkmiðum skipulags svæðisins er að nýta vel einstakt útsýni til suðurs í átt að Helgafelli og Lönguhlíðum.
Kynningavefur um nýbyggingarverkið mun fara í loftið á næstunni.
Heimild: Buseti.is