Home Fréttir Í fréttum Eigið fé Vaðla­heiðar­ganga verði neikvætt í lok árs

Eigið fé Vaðla­heiðar­ganga verði neikvætt í lok árs

28
0
Ljósmynd: Aðsend mynd

Heildartap Vaðlaheiðarganga frá því að þau opnuðu í ársbyrjun 2019 er komið yfir 5 milljarða króna.

Vaðlaheiðargöng voru rekin með 587 milljóna króna tapi í fyrra, samanborið við tæplega 1,1 milljarðs króna tapi árið 2023, sem má einkum rekja til hás fjármagnskostnaðar. Stjórn félagsins segir í nýbirtum ársreikningi að útlit sé fyrir eigið fé félagsins verði neikvætt í árslok 2025.

Heildartap frá því að eiginlegur rekstur Vaðlaheiðarganga hófst með formlegri opnun ganganna í upphafi árs 2019 nemur yfir fimm milljörðum króna.

Taprekstur Vaðlaheiðarganga hf. má rekja til hárra fjármagnasgjalda en félagið var með verðtryggð lán upp á 16 milljarða króna við ríkissjóð í lok síðasta árs. Hrein fjármagnsgjöld félagsins námu 1.034 milljónum króna árið 2024 samanborið við 1.464 milljónir árið áður.

Tekjur félagsins af veggjaldi námu 840 milljónum króna, samanborið við 756 milljónir árið áður sem samsvarar 11% aukningu. Rekstrargjöld jukust um 8,9% og námu 149 milljónum. Rekstrarhagnaður (EBIT) jókst úr 371 milljón í 446 milljónir milli ára.

Alls fóru 592,9 þúsund ökutæki, sem greiddu veggjald, um göngin í fyrra eða 1.624 ökutæki að jafnaði á degi hverjum yfir árið. Til samanburðar nam fjöldinn 583,1 þúsund árið 2022. Stök ferð í göngin kosta í dag 2.152 krónur fyrir hefðbundnar fólksbifreiðar.

Eignir Vaðlaheiðarganga hf. voru bókfærðar á 16,5 milljarða króna í árslok 2024. Eigið fé nam 293 milljónum króna og skuldir félagsins námu 16,2 milljörðum króna.

Skjáskot af Vb.is

Heimild: Vb.is