Home Fréttir Í fréttum Lækka gatnagerðargjöld af atvinnulóðum um helming

Lækka gatnagerðargjöld af atvinnulóðum um helming

44
0
Bragi Bjarnason bæjarstjóri ræddi við mbl.is. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi

Sveit­ar­fé­lagið Árborg hef­ur ákveðið að lækka gatna­gerðar­gjöld af at­vinnu­lóðum um helm­ing til að bæta sam­keppn­is­stöðu sína og hvetja til auk­inn­ar at­vinnu­upp­bygg­ing­ar.

Þetta seg­ir Bragi Bjarna­son, bæj­ar­stjóri Árborg­ar, í sam­tali við mbl.is.

Á fundi bæj­ar­stjórn­ar þann 4. júní var samþykkt að lækka gatna­gerðar­gjöld fyr­ir at­vinnu­lóðir úr 10% niður í 5% af verðgrunni hag­stof­unn­ar.

Lág­marks­gjald lækk­ar einnig
Aðgerðin kem­ur í kjöl­far heild­ar­skoðunar á bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld­um og gatna­gerðar­gjöld­um sveit­ar­fé­lags­ins.

Bragi seg­ir að lækk­un­in nái sér­stak­lega til at­vinnu­lóða, þar sem bæði gatna­gerðar­gjaldið lækk­ar um helm­ing og lág­marks­gjald við út­hlut­un at­vinnu­lóðar minnk­ar.

„Árborg er mjög spenn­andi svæði,“ seg­ir Bragi. „En við höf­um ekki verið sam­keppn­is­hæf þegar litið er til ná­granna­sveit­ar­fé­laga á sama at­vinnusvæði.“

„Margt mjög spenn­andi í gangi“
Hann seg­ir að sveit­ar­fé­lagið hafi borið sig sam­an við ná­granna­sveit­ar­fé­lög­in með hliðsjón af sam­eig­in­legri at­vinnu­stefnu og kom­ist að þeirri niður­stöðu að Árborg væri dýr­ari en önn­ur sveit­ar­fé­lög á svæðinu.

„Þannig við vild­um end­ur­skoða þenn­an lið með það í huga að verða sam­keppn­is­hæf­ari á svæðinu, ýta und­ir lægri skatta og hvetja til frek­ari at­vinnu­upp­bygg­ing­ar,“ seg­ir Bragi.

Bragi bend­ir á að sveit­ar­fé­lagið hafi ný­lega samþykkt nýtt deili­skipu­lag og vill sveit­ar­fé­lagið styðja við frek­ari at­vinnu­upp­bygg­ingu með áherslu á nægt fram­boð lóða og lækk­un skatta.

„Við erum með mjög spenn­andi svæði, í raun allt þetta at­vinnusvæði. Teng­ing við inn- og út­flutn­ings­höfn, við þjóðveg­inn og fjölg­un­in á svæðinu. Það er margt mjög spenn­andi í gangi,“ seg­ir Bragi.

Heimild: Mbl.is