Home Fréttir Í fréttum Fleiri akreinar á nýjum Vesturlandsvegi en áætlað var því það reynist ódýrara

Fleiri akreinar á nýjum Vesturlandsvegi en áætlað var því það reynist ódýrara

43
0
Breikkun er hafin á nýjum Vesturlandsvegi um Kjalarnes. RÚV – Arnór Fannar Rúnarsson

Undirbúningur annars áfanga í breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes er hafinn. Vegurinn er þriðji umferðarþyngsti þjóðvegur landsins utan þéttbýlis. Einni akrein hefur verið bætt við í áætlun því það reynist ódýrara í framkvæmd.

Unnið er að tvöföldun hringvegarins Vesturlandsvegar, frá Varmhólum að Hvalfjarðargöngum. Fyrsta áfanga lauk árið 2023 og undirbúningur annars áfanga er hafinn. Verði verkefnið sett í forgang í samgönguáætlun í haust fara framkvæmdir í gang árið 2027 og verkið verður klárað um 2030.

Fergjun varnar því að vegurinn hrynji

Búið er að fergja hluta leiðarinnar með jarðefni úr fyrsta áfanga. Þá er fyllt upp í mýrina í þriggja til fjögurra metra hæð og efnið látið síga í einn til átján mánuði til að mýrin þétti sig og vatnið leki úr henni.

„Við stöndum hérna á mýri sem er allt að 15 metra djúp og ef við myndum ekki fergja og byggja veg ofan á það þá myndi vegurinn bara hrynja ofan í mýrina,“ segir G. Pétur Matthíasson forstöðumaður samskiptadeildar hjá Vegagerðinni.

Umferðarþungi hefur aukist

Með framkvæmdinni er verið að aðskilja akstursstefnur til að auka umferðaröryggi. Vegurinn er þriðji umferðarþyngsti þjóðvegur landsins utan þéttbýlis.

„Umferðin eykst ótrúlega mikið. Við erum að tala um 3% til 6% ári sem er gríðarlega mikil aukning. Við viljum koma í veg fyrir þessa árekstra þar sem bílar keyra hver á móti öðrum. Þú getur ímyndað þér að vera á 90 km hraða, báðir á 90 km hraða, þá getur orðið gríðarlega öflugur árekstur. Til viðbótar við það að aðskilja akstursstefnurnar þá erum við líka að losa okkur við öll gatnamótin sem koma inn á þessa umferðarmiklu vegi sem eru mjög hættuleg,“ segir G. Pétur.

Fleiri akreinar en áætlað var

Til stóð að vegurinn yrði tvær akreinar á móti einni.

„Þá kom í ljós að ef við færum að grafa frá veginum til þess að byggja að honum að þá fór hann bara að hrynja þannig að það var í raun og veru ódýrara að byggja tveir plús tveir veg hérna. Þannig að þetta verður þessi fíni tveir plús tveir vegur alla leið að Hvalfjarðargöngunum,“ segir G. Pétur.

Heimild: Ruv.is