Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar hefur óskað eftir tilboðum í átta færanlegar smáíbúðir, um 35 m² að stærð hver og einnig hefur verið óskað eftir verði í eitt 15 m² einstaklingsherbergi, sem á að innihalda anddyri, svefnaðstöðu og snyrtingu.
Verkið er boðið út í alútboði. Íbúðirnar og herbergið eru ætlaðar fyrir einstaklinga sem eru með fjölbreyttan vanda og þarf að horfa sérstaklega til þeirra þátta við hönnun húsanna. Tilboðum á að skila á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir 11. ágúst næstkomandi.
Skipulögð hafa verið fimm svæði á Akureyri undir smáhýsin, eitt þeirra er ný 3.600 m2 lóð á erfðafestulandi norðvestan Síðubrautar og sunnan Sjafnargötu 1a og 1b þar sem gert er ráð fyrir allt að fimm smáhýsum. Annað svæði sem horft er til er við Hlíðarfjallsveg, þá eru svæði við Baldursnes, Ytra-Krossanes og Miðhúsabraut einnig inni í myndinni.
Heimild: Vikubladid.is