
Í dag var undirritaður samningur Nýs Landspítala ohf. við Alma Verk ehf vegna í endurgerðar Fífilsgötu milli Hringbrautar og Gömlu Hringbrautar, upprif á hluta Hrafnsgötu og fullgera götuna frá Fífilsgötu austur-fyrir inngang að Barnaspítala. Verkið er samstarfsverkefni NLSH, Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar ásamt aðkomu Mílu, Ljósleiðarans og Veitna.

Verkið felst meðal annars í að endurgera Fífilsgötu milli Hringbrautar og Gömlu Hringbrautar, upprif á hluta Hrafnsgötu og fullgera hana síðan frá Fífilsgötu austur-fyrir inngang að Barnaspítala, leggja nýjar fráveitu- og vatnsveitulagnir með allri þeirri jarðvinnu sem til þarf, setja niður fituskilju í Hrafnsgötu og breyta dælubrunni, útbúa og setja niður stokka og brunna fyrir háspennulagnir, jarðvegsskipta á hluta svæðis, gerð neyðarreinar í hægri beygju frá Hringbraut inn á Fífilsgötu, færa ljósastólpa við Hringbraut og Fífilsgötu, útbúa hjáleið fyrir Strætó í gegnum núverandi umferðareyjar á Fífilsgötu og inn að Vatnsmýrarvegi vestan við Fífilsgötu, fylla í hluta Burknagötu að bílastæðahúsi, leggja snjóbræðslulagnir, malbika stíga og götur, helluleggja og ganga frá yfirborði og merkingum á svæðinu.
Einnig er innifalið í verkinu gerð steypts stoðveggjar og tröppu vestan meðferðarkjarna ásamt steyptrar rofastöðvar vestan við Barnaspítala, upp við Barónsstíg.
Heimild: NLSH.is