Home Fréttir Í fréttum Vonast til að hefja framkvæmdir við Fjarðabyggðarhöllina í sumar

Vonast til að hefja framkvæmdir við Fjarðabyggðarhöllina í sumar

36
0
Mynd: Austurfrett.is

Beðið er eftir að öll leyfi verði tilbúin þannig hægt verði að hefja framkvæmdir við þak Fjarðabyggðarhallarinnar í sumar. Ný lausn í orkuöflun er til skoðunar í framtíðinni.

Fjarðabyggð fékk í síðustu viku tæpar 45 milljónir króna úr fiskeldissjóði gagngert í endurbætur á höllinni. Það dugir samt aðeins áleiðis því áætlaður heildarkostnaður við fyrsta áfanga verksins er áætlaður um 300 milljónir króna. Inni í því er ný lýsing í húsinu.

Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs, segir að stefnt sé að því að komast af stað í sumar en þakið á húsinu er ryðgað.

„Við bíðum núna eftir að sú aðferðafræði sem við ætlum að nota, teikningar og annað verði staðfest af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun,“ segir Ragnar.

Til stendur að bera efni á þakið til að stöðva ryðið. Síðan verði sprautað yfir það kvoðu og loks lögð á það heit plastkápa. Ragnar segir að þessi aðferð hafi meðal annars verði notuð á Reykjaneshöllina sem og ný fjölbýlishús að Hlíðarenda í Reykjavík og stóra skemmu á Grænlandi. Hún hafi því gefist vel á norðurslóðum þótt enn sé að fást reynsla á hana hérlendis.

„Þetta er langsamlega hagkvæmasta lausnin sem við höfum skoðað. Helsta áskorunin við hana eru veðurskilyrðin. Það þarf að vera þurrt í ákveðinn tíma og ekki mikill vindur. Þess vegna liggur okkur á að komast af stað,“ segir Ragnar.

Næst að loka og kynda

Þá skrifaði Fjarðabyggð nýverið undir viljayfirlýsingu við Tandraorku á Eskifirðii og Alor um að skoða möguleika við kyndingu hallarinnar. Tandraorka hefur verið að þróa hitunarlausnir sem byggja á að brenna trjákurli en Alor sérhæfir sig í sólar- eða birtuorku og orkugeymslum.

Ragnar segir viljayfirlýsinguna vera um samstarf við fyrirtækin sem séu að sækja um alþjóðlega styrki til þróunar tækni sem byggi á samspili brennslu og sólarorku. Það sé enn á frumstigi en sveitarfélagið hafi tekið jákvætt í umleitanir fyrirtækjanna.

Í næsta áfanga framkvæmda við Fjarðabyggðarhöllina er gert ráð fyrir að loka göflunum í henni og koma upp kyndingu með loftræstingu.