Þann 3 júní 2025 voru opnaðar þátttökubeiðnir í I4074 Forval – Innanhússfrágangur og stýriverktaka hæðir K2 -4h í meðferðarkjarna.
Þrír þátttakendur skiluðu inn gögnum vegna forvals :
- Ístak hf.
- Eykt ehf.
- ÞG verktakar ehf.
Farið verður yfir innsend gögn þátttakenda og kannað hvort þeir uppfylli þær kröfur sem settar voru í forvali.
Forvalið var opið öllum hæfum umsækjendum og var auglýst á Íslandi og Evrópska efnahagssvæðinu (EES) samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (hér eftir skammstafað „OIL”). Að loknu forvali munu þeir þátttakendur sem uppfylla lágmarkskröfur um hæfi samkvæmt hæfiskröfum forvalsins vera gefinn kostur á að taka þátt í lokuðu útboði samkvæmt 35. gr. OIL.
Stærð nýs meðferðarkjarna er um 70 þúsund fermetrar sem skiptast á 8 hæðir, þar af 2 hæðir neðanjarðar (K1 og K2). Útboð þetta tekur til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum að undanskildum legudeildum á 5. – 6. hæð.
Ákveðin sérmerkt rými verða þó ekki hluti af innanhússfrágangi þessa útboðs þar sem fullnaðarhönnun þeirra er ekki lokið eða ákvarðanir hafa ekki verið teknar um útfærslu frágangs.
Heimild: NLSH.is