Vegagerðin og Reykjanesbær óska eftir tilboðum í gerð undirganga undir Reykjanesbraut við Hafnaveg ásamt gerð aðliggjandi göngustíga.
Helstu magntölur eru:
- · Bergskering 1750 m3
- · Fylling 2550 m3
- · Fláafleygar 2370 m3
- · Efra burðarlag 165 m3
- · Malbik 2725 m2
- · Lögn stálræsis 36 m
Verkinu skal að lokið eigi síðar en 15. nóvember 2016.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 26. júlí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. ágúst 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.