Home Fréttir Í fréttum Sprengingar á 20-30 mínútna fresti

Sprengingar á 20-30 mínútna fresti

45
0
Frá framkvæmdunum um miðjan maí. mbl.is/Eyþór

Vel fannst fyr­ir spreng­ing­um í gær í grennd við Sig­tún í Laug­ar­nes­hverf­inu. Spreng­ing­arn­ar voru á tíma­bili á 20-30 mín­útna fresti. Íbúi í Sig­túni seg­ir spreng­ing­arn­ar farn­ar að hafa áhrif á heim­ili sitt og íbú­ar í hverf­inu séu farn­ir að hafa áhyggj­ur.

Spreng­ing­arn­ar eru til komn­ar vegna stækk­un­ar Grand hót­els og bygg­ing­ar bíla­kjall­ara fyr­ir íbúðarbyggð sem á að rísa á Blóma­vals­reitn­um, en mbl.is hef­ur áður greint frá mál­inu.

Íbúar ekki upp­lýst­ir

Úlfar Snær Arn­ar­son, íbúi í Sig­túni, seg­ir fund hafa verið hald­inn með íbú­um í lok ág­úst 2022 þar sem fram­kvæmd­irn­ar voru kynnt­ar. Var þá íbú­um sagt að þeir yrðu upp­lýst­ir um þróun mála og að fleiri fund­ir yrðu haldn­ir. Það hef­ur hins veg­ar ekki verið gert.

Skömmu síðar, í nóv­em­ber 2022, hafi byrjað fleyg­un sem hafi valdið sí­felld­um hávaða frá morgni til kvölds. Seg­ir Úlfar það þó hafa verið tíma­bundið og að hann hafi í raun verið einn af þeim sem vildu sjá verk­taka fara í spreng­ing­ar til að drífa verk­efnið áfram í stað þess að vera með stöðugan hávaða.

Öflug­ar spreng­ing­ar

„En mér kom samt á óvart hvað þetta voru öfl­ug­ar spreng­ing­ar,“ seg­ir Úlfar og bend­ir jafn­framt á að spreng­ing­arn­ar ættu að vera á til­sett­um tíma og á klukku­tíma fresti.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið þann 22. maí sagði Magnús Hjálm­ars­son, spreng­i­stjóri hjá Borg­ar­virki, að sprengt væri á klukku­tíma fresti, eins og klukk­an 9.55 og 10.55 og svo fram­veg­is.

„Svo brá mér bara í morg­un. Ég var heima hjá mér að vinna og þá var þetta farið að verða á svona rúm­lega 20-30 mín­útna fresti,“ seg­ir Úlfar.

Hann nefn­ir þó að á Face­book-síðu Laug­ar­nes­hverf­is­is­ins hafi verið bent á að hinar tíðu spreng­ing­ar hafi verið vegna sér­stakra aðstæðna.

Fólk kannski langþreytt á upp­lýs­inga­leysi

Finn­irðu eitt­hvað fyr­ir því þegar þú tal­ar við ná­grann­ana að það sé ein­hver pirr­ing­ur yfir þessu?

„Fólk er held ég svo­lítið langþreytt á upp­lýs­inga­leys­inu. Það er lítið til­kynnt eins og stór öku­tæki sem taka hluta af svæðinu. Það er verið að grafa og moka og skyndi­lega er bara búið að setja upp ein­hverj­ar keil­ur og hindr­an­ir til að loka bíla­stæðum og það er varla sópuð gata hérna í Reykja­vík án þess að það séu sett upp skilti þar sem það er sagt að fjar­lægja bíla svo að það sé hægt að sópa. En í þessu til­felli virðist vera hægt að setja upp alls kon­ar keil­ur og merki til þess að af­marka svæði íbúa í götu fyr­ir verk­taka,“ seg­ir Úlfar og held­ur áfram:

„Þetta virðist vera mjög vítt leyfi sem borg­in gef­ur. Auðvitað ganga verk­tak­ar eins langt og þeir geta í sín­um fram­kvæmd­um, en það er aðallega borg­in sem ég er að gagn­rýna fyr­ir það eft­ir­lits­leysi sem virðist vera. Vinnu­eft­ir­litið bend­ir á bygg­ing­ar­full­trúa og þar virðist það bara vera þannig að þeir gefa út leyfi og svo er lítið eft­ir­lit með því hvernig farið er að hlut­un­um. Kannski skort­ir eitt­hvað upp á reglu­gerðir eða annað hjá borg­inni.“

Þekk­ir hverja ein­ustu sprungu

Þá seg­ir hann aðspurður að betra væri að íbú­ar hverf­is­ins væru bet­ur upp­lýst­ir um þróun fram­kvæmd­anna.

„Af því að maður veit að það eru mörg ár sem svona bygg­ing tek­ur,“ seg­ir Úlfar og nefn­ir jafn­framt að Sig­tún sé göm­ul gata sem hafi verið byggð fyr­ir 80 árum. Afi hans hafi byggt húsið sem hann býr í og hann sjálf­ur hafi lengi búið í því.

„Þannig að ég þekki hverja ein­ustu sprungu í hús­inu. Ég veit al­veg hvaða áhrif þess­ar spreng­ing­ar hafa haft á húsið. Það er byrjað að gliðna og það koma sprung­ur, sér­stak­lega þar sem tré­verk og steypa kem­ur sam­an. Þar eru að koma sprung­ur.“

Þá seg­ir Úlfar það vera mikið áhyggju­efni að hrist­ing­ur sem spreng­ing­arn­ar bera með sér dynji á hús­um sem eru orðin göm­ul.

„Ég held að all­ir hafi áhyggj­ur af því þarna í kring.“

Heimild: Mbl.is