Home Fréttir Í fréttum Landsbankinn selur gömlu höfuðstöðvarnar

Landsbankinn selur gömlu höfuðstöðvarnar

12
0
– Landsbankinn

Landsbankahúsið við Austurstræti er komið á sölu. Ríkið lýsti yfir áhuga á að kaupa húsið en ekkert varð af því.

Landsbankinn hefur auglýst til sölu gömlu höfuðstöðvar sínar við Austurstræti í Reykjavík og nærliggjandi hús við Hafnarstræti 10, 12 og 14.

Húsið við Austurstræti var reist 1898 og voru höfuðstöðvar bankans þar allt þar til hann flutti í nýjar höfuðstöðvar við Austurhöfn í Reykjavík snemma árs 2023.

Húsið við Austurstræti er tæpir 5.900 fermetrar og fasteignamatið er tæpir 2,3 milljarðar króna.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að íslenska ríkið hafi á sínum tíma lýst yfir áhuga á að kaupa húsið en nú sé ljóst að ekkert verði af kaupunum.

Heimild: Ruv.is