Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við Reykjanesbraut verði settar í forgang

Framkvæmdir við Reykjanesbraut verði settar í forgang

104
0

Unnið er að því að koma tvöföldun Reykjanesbrautar inn á samgönguáætlun, sem lögð verður fyrir þingið þegar það kemur aftur saman, að sögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og þingmanns Suðurkjördæmis.

<>

Ragnheiður Elín fundaði með Ólöfu Nordal innanríkisráðherra og þrýstihópum Stopp hingað og ekki lengra í gær en markmið hópsins er að knýja fram framkvæmdir á Reykjanesbraut. Þess er annars vegar krafist að Reykjanesbraut verði tvöfölduð og hins vegar að þrjár vinstri beygjur á gatnamótum á milli hringtorgsins við Fitjar og hringtorgsins við Keflavíkurflugvöll verði bannaðar undir eins.

Frumvarp í vinnslu í ráðuneytinu
„Þetta var mjög góður fundur og ég vilja á að hrósa þessum hópi fyrir þeirra vinnubrögð og hversu vel þau setja fram mál sitt. Ég þekki þetta náttúrulega af eigin raun sem íbúi á svæðinu og hef séð aukninguna á umferð þarna, eins og aðrir íbúar. Innanríkisráðherra upplýsti um það á fundinum að það væri í vinnslu í ráðuneytinu að setja þennan part vegarins inn á samgönguáætlun sem er til meðferðar í þinginu,” segir Ragnheiður Elín. „Hópurinn kom síðan með tillögur um bráðabirgðaaðgerðir sem verða skoðaðar en þær miða allar að því að auka umferðaröryggi.

Ragnheiður segir mikilvægt sé að brugðist verði við hratt og örugglega. „Við sjáum aukinn umferðarþunga þarna og þó það sé ekkert að því að hinkra á gatnamótum í nokkrar mínútur eftir að komast út á veg þá verður það oft til þess að fólk fer að taka sjénsinn og það skapar hættu. Þannig að það þarf að bregðast við með annað hvort hringtorgum eða öðrum aðgerðum og það tel ég að við þurfum að setja í forgang og það er það sem verður sett í skoðun,” segir hún.

Brýn þörf á úrbótum
Hins vegar sé erfitt að segja til um hvenær hægt verði að hefjast handa, en að í millitíðinni þurfi að grípa til bráðabirgðaaðgerða. „Það kom skýrt fram á þessum fundi að ráðuneytið og samgönguyfirvöld eru meðvituð um þessa stöðu og það er mikill áhugi og vilji til þess að leysa það. Ég held það sé ekki síst til að koma þessum málum þannig að það sjái fyrir endann á því og að í millitíðinni verði bætt úr þeim öryggisatriðum sem þarna eru. Það er mjög brýn og knýjandi þörf á að bæta úr, þannig að þetta verði unnið í þessum áföngum,” segir Ragnheiður Elín.

Ísak Ernir Kristinsson, talsmaður þrýstihópsins, segir fundinn hafa verið góðan. Nú verði að bíða og sjá til hvaða aðgerða stjórnvöld muni grípa. Hópurinn muni halda kröfu sinni til streitu þar til stjórnvöld bregðist við.

„Við áttum gott spjall en við eigum eftir að eiga gott spjall líka við þingmennina í kjördæminu. Við höfum ekki fengið viðbrögð frá nærri því öllum þannig að við þurfum að halda áfram að eiga samtal og þannig byggjum við þetta upp. Við erum ekki að fara í neina skærustarfsemi. Við ætlum ekki að loka Reykjanesbraut eða neitt þess háttar. Við ætlum að eiga samtalið og afgreiða þetta með ráðamönnum,” segir Ísak Ernir.

Heimild: Visir.is