Home Fréttir Í fréttum Kín­verskir verk­takar fá ekki að bora skipagöng í Noregi

Kín­verskir verk­takar fá ekki að bora skipagöng í Noregi

23
0
Verktakar sem samþykktir voru í forvali þurfa að skila inn tilboðum í gerð skipaganganna fyrir 9. júní næstkomandi. Kystverket/Multiconsult/Link Arkitektur

Fjórar verktakasamsteypur hafa verið samþykkar í forvali til að bjóða í gerð skipaganga í Noregi. Tveimur verktökum frá Kína var hins vegar hafnað. Norskir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum höfðu áður varað við því að kínverskum verktökum yrði leyft að taka þátt í útboðinu.

„Áhugi Kína á norðurslóðum fer ört vaxandi. Við höfum séð það í Norður-Noregi, á Svalbarða, á Íslandi, á Grænlandi. Og nú einnig skipagöngin við Stað,“ sagði Kåre Dahl Martinsen, prófessor í öryggis- og varnarmálum við varnarmálaskóla norska hersins, í viðtali við norska ríkisútvarpið NRK í febrúar.

„Kína hefur reynt að ná fótfestu í höfnum í Noregi og nú reyna þeir fyrir sér í stærra innviðaverkefni,“ sagði Dahl Martinsen og vísaði til þess að í þjóðaröryggismati væri varað við vaxandi ógn af njósnum frá Kína.

Göngin gætu opnast skipaumferð eftir sex ár, eftir áætlanir ganga eftir.
Kystverket/Multiconsult /LINK Arkitektur

Þar sem skipagöngin yrðu mikilvæg leið fyrir skipaumferð meðfram ströndinni yrði að skilgreina þau sem „viðkvæma innviði“. Í öðrum Evrópulöndum hefði ekki komið til greina að Kína fengi að taka þátt í slíkri framkvæmd.

Kínversk fyrirtæki gætu oft lagt fram „ómótstæðileg tilboð“ en þá gerðist það með ríkisstyrkjum, að sögn Dahl Martinsen. Ef það hefði öryggispólitíska þýðingu fyrir Kína væru engin takmörk fyrir því hversu mikið kínversk ríkisfyrirtæki gætu fengið í styrki.

Fræðimaður við norska flotaskólann, Tor Ivar Strømmen, lýsti sömuleiðis áhyggjum vegna áhuga Kínverja á verkefninu. Þingmaður Hægriflokksins, Olve Grotle, kvaðst einnig efins um að kínversk fyrirtæki fengju að vinna verkið og sagði að fara yrði með gát.

Í þessari frétt Stöðvar 2 er sýnt hvernig verður að sigla um göngin

Sex verktakasamstæður sóttu um að fá að bjóða í skipagöngin:

  1. Skanska Norge AS og Vassbakk og Stol AS (Noregi).
  2. AF Gruppen Norge AS (Noregi).
  3. Eiffage Genie Civil (Frakkandi).
  4. Acciona Construccion S.A og Bertelsen og Garpestad AS (Spáni og Noregi).
  5. PowerChina International Group Limited, Sichuan Road and Brigde Corporation Ltd., Sinohydro bureau 7. Ltd, PowerChina Huadong Engineering (Kína).
  6. China Road and Brigde Corporation, CCCC Second Highway Engineering Co. Ltd., CCCC Highway Consultants Co. Ltd (Kína).

Svo fór að norska siglingastofnunin Kystverket samþykkti fjóra verktaka út frá „tæknilegri og faglegri hæfni“ en hafnaði báðum kínversku verktökunum. Sagði að þá hefði skort bæði reynslu og hæfni til að takast á við verkið.

Fulltrúar verktakanna sem samþykktir voru í forvalinu heimsóttu fyrirhugað framkvæmdasvæði nýlega ásamt fulltrúum siglingastofnunar Noregs, Kystverket.
Tor Arne Aasen/Kystverket

Verktakarnir fjórir hafa frest til 9. júní næstkomandi til að skila inn fyrsta verðtilboði. Tilboðin verða síðan metin og samið um þau, jafnvel í nokkrum umferðum, áður en besta tilboðið er valið. Markmiðið er að samningur verði undirritaður haustið 2025 og framkvæmdir hefjist árið 2026. Áætlað er að fimm ári taki að grafa göngin, sem yrðu fyrstu skipagöng heims.

Verkið er þó háð því að samningur verði innan þess kostnaðarramma sem norska Stórþingið hefur samþykkt, upp á um 64 milljarða íslenskra króna. Annars þarf norska ríkisstjórnin að leggja málið aftur fyrir þingið.

Heimild: Visir.is