Hafnarstjórn Dalvíkur óskar eftir tilboðum í verkið, “ Dalvík – Norðurgarður, steypt þekja og lagnir 2025 „
Brjóta og fjarlægja eldra yfirborð, um 700 m²
|
Leggja ídráttarrör
|
Leggja kaldavatnslagnir
|
Setja upp vatnshana og tenglaskápa
|
Leggja snjóbræðslu
|
Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu
|
Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 870 m²
|
Steypa undirstöðu fyrir ljósamastur
|
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. desember 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 6. maí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. maí 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.