Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið Rangárþing ytra – Íþróttasvæði Hellu, gervigrasvöllur -Gervigras.
Útboðsverkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi gervigrass með eða án fjaðurlags (in-situ) vegna nýs vallar á Hellu. Gervigrasið skal vera af bestu fáanlegum gæðum og uppfylla FIFA Quality staðal Alþjóðaknattspyrnusambandsins.
Helstu þættir verksins eru:
- Gervigrasyfirborð alls um 8.588m2
- Keppnisvöllur 68x105m
- Heildarstærð 76x113m
Skiladagar verksins eru eftirfarandi:
- Verklok keppnisvallar – 15. ágúst 2025
Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með miðvikudeginum 23. apríl 2025.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en þriðjudaginn 13. maí kl. 14:00