Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með malbiki og blettaviðgerðir með malbikuðum slitlögum á Vestursvæði 2025.
Yfirlagnir
|
15.595 m2
|
Gróffræsing (fræsing lása)
|
175 m2
|
Malbiksviðgerðir / blettaviðgerðir
|
600 m2
|
Verklok eru 15. ágúst 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 16. apríl 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. maí 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.