Vegagerðin býður hér með út styrkingu og malbikun á 1,7 km kafla á Eyrarbakkavegi, frá Stekkum að Tjarnarbyggð. Verkið felst í að fræsa upp núverandi slitlagi á vegunum, jafna því út og breikka veg lítilsháttar
og keyra að jafnaði 15 cm þykku burðarlagi yfir og leggja malbik. Einnig skal verktaki sjá um að fræsa hvinrendur í miðju.
Skering
|
974 m3
|
Styrktarlag 0/63
|
115 m3
|
Burðarlag 0/22
|
2.250 m3
|
Slitlagsmalbik á möl 6 cm
|
13.500 m2
|
Frágangur fláa
|
5,500 m2
|
Verklok eru 25. ágúst 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 7. apríl 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. apríl 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.