Home Fréttir Í fréttum 09.04.2025 Malbiksviðgerðir 2025

09.04.2025 Malbiksviðgerðir 2025

37
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Malbiksviðgerðir 2025, útboð 16120

Viðgerðir á malbiki gatna, gönguleiða, bílastæða og annars yfirborðs í Reykjavík vegna viðhalds og/eða eftir framkvæmdir veitustofnana.

Magntölur um 12.100 m2.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:30 þann 26. mars 2025.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, þann 9. apríl 2025.