Home Fréttir Í fréttum 23.04.2025 Gervigrasvöllur í Safamýri Reykjavík – endurnýjun vallarlýsingar

23.04.2025 Gervigrasvöllur í Safamýri Reykjavík – endurnýjun vallarlýsingar

38
0
Mynd: mbl.is/Kristinn Magnússon

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

Gervigrasvöllur í Safamýri Reykjavík – endurnýjun vallarlýsingar, EES útboð 16119

Verkið felst í að útvega, setja upp og prófa flóðlýsingu á knattspyrnuvöll með gervigrasi á íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Verktaki skal hanna og skila útreikningum sem sýna að lágmarkskröfum sé náð. Verktaki skal hanna lýsinguna í samræmi við kröfur staðalsins ÍSTEN 12193 um lýsingu á fótboltavelli utanhúss skv. Class I.

Ábyrgðartími ljósabúnaðar skal vera að lágmarki 10 ár.

Gert er ráð fyrir allt að sex 18 m háum ljósamöstrum utan öryggissvæðis vallarins

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, 18. mars 2025.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef  Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30, 23. apríl 2025.