Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 31.03.2025 SORPA – Endurvinnslustöð, Lambhagavegur 14. EES

31.03.2025 SORPA – Endurvinnslustöð, Lambhagavegur 14. EES

84
0
Ný endurvinnslustöð Sorpu við Lambhagaveg verður byggð á næsta ári. Hún verður yfirbyggð að hluta og verður á tveimur hæðum.

Skrifstofa fjármála- og ráðgjafar f.h. SORPU bs, óskar eftir tilboðum í verkið: „SORPA – Endurvinnslustöð, Lambhagavegur 14“, sem var forauglýst þann 31. janúar 2025, sjá hér: 66307-2025 – Planning – TED

Kaupandi fyrirhugar að byggja nýja endurvinnslustöð að Lambhagavegi 14, 113 Reykjavík. Endurvinnslustöðin við Lambhagaveg tekur við flokkuðum úrgangi frá viðskiptavinum kaupanda og mun þjóna um 50.000 íbúum á höfuðborgarsvæðinu.

Undirstöður, botnplötur og stoðveggir eru staðsteyptir úr járnbentri steinsteypu og grundaðir á fyllingarpúða. Aðalburðarvirki veggja er úr staðsteyptri steinsteypu. Þak yfir aðalbyggingu og skyggni er gert úr þakeiningum og límtrébitum. Stálsúlur eru undir límtrébitum í skyggni. Þak og þakbitar í útigeymslu er staðsteypt úr járnbentri steinsteypu. Útveggir klæðast með yleiningum og timburklæðningu.Lóðin er að mestu malbikuð, rampur er á milli þjónustusvæðis og losunarsvæðis almennings. Svæðið verður afgirt og með rafmagnshliði við inn- og útkeyrslu við lóðarmörk

Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:40 þann 14. mars 2025. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 31. mars 2025.