Home Fréttir Í fréttum 04.03.2025 Yfir­lagn­ir á Austur­svæði 2025, klæð­ing

04.03.2025 Yfir­lagn­ir á Austur­svæði 2025, klæð­ing

40
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með klæðingu á vegum á Austursvæði árið 2025. Verkefnið felst í að leggja einfalt lag af klæðingu með þjálbiki yfir eldra slitlag.

<>
Helstu magntölur eru áætlaðar ár hvert:
Hjólfarafylling með klæðingu
10.000 m2
Klæðing, útlögn með þjálbiki
285.000 m2
Klæðing, kíling, útlögn
12.500
Klæðing, yfirsprautun
11.000
Klæðing, flutningur steinefnis
159.500 m3 * km
Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis
88.900 m3 * km
Formerkingar, línur
42.000 m

Verki skal að fullu lokið 20. ágúst 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 17.  febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. mars 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.