Framkvæmdir við breikkun Reykjanesbrautar á kaflanum Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun ganga mjög vel. Um er að ræða kaflann framhjá Álverinu. Unnið er víða á kaflanum og útlit fyrir að verkinu ljúki á undan áætlun.
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni ganga framkvæmdir vel og eru á undan áætlun. Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2026 en það er allt útlit fyrir að það verði fyrr.
Þó nokkrar þrengingar á umferð eru á svæðinu við Álverið og svaraði Vegagerðinni því til við fyirspurn FÍB að líklega fara þær eftir því í hvaða fasa verkefnið er hverju sinni. Þrengingar eru núna þar sem verið er að vinna við undirgöng í Straumsvík. Þetta er vinnusvæði þar til framkvæmdum lýkur og ekki með sama hætti allan verktímann.
Verkefnið er síðasti áfangi í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla við álverið í Straumsvík auk brúarmannvirkja og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi.
Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót við Rauðamel en þar er að finna nýtt framtíðar byggingarsvæði Hafnarfjarðar. Mislæg gatnamót við Straumsvík verða stækkuð og bætt við tengingu að iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu.
Einnig verða gerðir eftirlitsstaðir við Reykjanesbraut og stofnstígur fyrir gangandi og hjólandi milli Hraunavíkur og Straums ásamt tengingu við Straumsvík.
Heimild: Fib.is