Home Fréttir Í fréttum Selásbygging fyrir dóm – Framkvæmdir stopp í um sex ár

Selásbygging fyrir dóm – Framkvæmdir stopp í um sex ár

146
0
Mynd: Já.is

Aðalmeðferð í máli sem snýr að byggingu einbýlishúss við Selás í Ásahverfi í Reykjanesbæ fer fram fyrir Héraðsdómi Reykjaness þann 4. mars næstkomandi. Framkvæmdir við byggingu hússins hafa verið svo gott sem stopp í um sex ár eftir að í ljós kom að byggingin stendur tæpum meter of hátt miðað við skipulag hverfisins.

<>

Málið hefur verið í gangi í kerfinu í langan tíma og voru framkvæmdir við byggingu hússins stöðvaðar með ákvörðun byggingafulltrúa í desember árið 2019. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála sem staðfesti ákvörðun byggingarfulltrúa með úrskurði í júní árið eftir.

Í úrskurði nefndarinnar, sem skoða má í heild hér, kemur meðal annars fram að svo virðist sem mistök af hálfu beggja aðila virðast hafa valdið því að málið sé komið í þennan farveg, þannig hafi byggingarfulltrúi samþykkt uppdrætti sem gerðu ráð fyrir að húsið væri rúmum meter hærra en deiliskipulag gerir ráð fyrir, eða 7,62 m á hæð í stað 6,3 metrar frá gólfplötu, þ.e. að gólfkótinn væri 13,20 og hæsti kóti 20,82.

Þeir uppdrættir voru hins vegar ekki áritaðir af löggiltum hönnuði og því ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag og áritun þeirra ekki lögum samkvæmt, segir meðal annars í úrskurðinum.

Sem fyrr segir var erindi eiganda hússins um hækkun hafnað í kjölfar grenndarkynningar, þar sem athugasemdir bárust frá íbúum við sömu götu. Í fylgigögnum með grenndarkynningunni má þó sjá að í nokkrum tilvikum virðist sem farið hafi verið á svig við gildandi deiliskipulag í hverfinu, en bent er á nokkrar byggingar hvar hæð húsa og þakgerð er ekki í samræmi við skipulagið auk þess sem húsagerðum hafi verið breytt, úr tveggja hæða í einnar hæðar, þannig að lóðir hafi verið hækkaðar um allt að þrjá metra.

Þá kemur fram í umsögn íbúa við götuna að ítrekað hafi verið bent á misræmi í hæðum og að leysa hefði mátt úr málinu með auðveldum hætti á fyrri stigum.

Þá tók Umboðsmaður Alþingis málið einnig fyrir og beindi þeim tilmælum til úrskurðarnefndarinnar að hún tæki málið upp á ný, en því hafnaði nefndin.

Í úrskurði  Umboðsmanns Alþingis sagði meðal annars:

„Í málinu lá fyrir að hæð hússins var í samræmi við byggingarleyfi sem A hafði fengið útgefið og þá uppdrætti sem byggingarfulltrúinn hafði upphaflega samþykkt. Umboðsmaður benti á að byggingarfulltrúa væri við ákveðnar aðstæður rétt að stöðva framkvæmdir tímabundið á meðan rannsakað væri hvort byggingarleyfi yrði fellt niður eða afturkallað. Þrátt fyrir það yrði ekki annað ráðið af rökstuðningi ákvörðunar hans um stöðvun framkvæmda en að hún hefði byggst á því að hæð hússins væri ekki í samræmi við skipulagsskilmála og uppfærða uppdrætti hússins. Að þessu leyti hefði aftur á móti ekkert komið fram um að byggingarfulltrúi hefði eftir stöðvun framkvæmdanna hafið undirbúning að ákvörðun um niðurfellingu eða afturköllun byggingarleyfisins.“

Heimild: Sudurnes.net