Vegagerðin býður hér með út hreinsun þjóðvega á Suðursvæði Vegagerðarinnar árin 2025- 2027. Verkið felur í sér sópun meðfram kantsteinum og vegriðum, sópun hvinranda ásamt hreinsun grassvæða meðfram þjóðvegum.
Gildistími samnings er 2 ár. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.
Sópun meðfram kantasteinum
|
381.618 m
|
Sópun bannsvæða
|
21.276 m2
|
Sópun meðfram vegriði
|
116.401 m
|
Sópun meðfram miðjuvegriði
|
44.351 m
|
Þvottur og sópun hvinranda
|
194.611 m
|
Þvottur á gatnamótum og umferðareyjum
|
32.540 m2
|
Verkinu skal að fullu lokið 31. mars 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 11. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 13. mars 2025.
Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.