Skagastrandarhöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Skagaströnd – Ásgarður, þekja og lagnir 2025“.
Brjóta og fjarlæga gamla þekju um 500 m2
|
Steypa 2 stöpla undir ljósamöstur
|
Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og koma fyrir rafmagnskápum
|
Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum
|
Leggja fráveitulögn og koma fyrir niðurföllum
|
Gróf- og fínjafna undir steypu
|
Slá upp mótum, járnbinda og steypa undirstöðu fyrir 8 polla
|
Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1.540 m²
|
Verki skal að fullu lokið 31. ágúst 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 10. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.