Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á 5,6 km kafla Örlygshafnarvegar frá Skápadalsá að Hvalskeri, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
- – Fyllingar og fláafleygar 26.120 m3
- – Skeringar 24.100 m3
- – Þar af bergskeringar 300 m3
- – Neðra burðarlag 11.730 m3
- – Efra burðarlag 6.240 m3
- – Tvöföld klæðing 37.655 m2
- – Frágangur fláa 65.450 m2
- – Rofvörn 900 m3
Verkinu skal að lokið með tvöfaldri klæðingu eigi síðar en 1. september 2017 og að fullu 1. september 2017.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Borgarnesi, Borgarbraut 66 og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 6. júní 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júní 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.