Home Fréttir Í fréttum Engin fjárheimild fyrir Fossvogsbrú

Engin fjárheimild fyrir Fossvogsbrú

45
0
Mikið var um dýrðir þegar framkvæmdir hófust við landfyllingar fyrir Fossvogsbrú, þar sem ráðherra tók fyrstu skóflustunguna. Morgunblaðið/Karítas

Upp­færður sam­göngusátt­máli höfuðborg­ar­svæðis­ins upp á 311 millj­arða króna er ekki hluti af gild­andi sam­göngu­áætlun Alþing­is til 15 ára, enda var aldrei lögð fram eða samþykkt sam­göngu­áætlun á þingi þar sem gert er ráð fyr­ir fjár­veit­ing­um til hans.

<>

Þetta seg­ir Vil­hjálm­ur Árna­son alþing­ismaður og vara­formaður um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar síðasta þings í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Bend­ir hann á að inni í svo­kallaðri lotu 1 í sátt­mál­an­um, frá Hamra­borg að Hlemmi og kosta átti 8,2 millj­arða, sé Foss­vogs­brú, en ekki sé minnst á hana í sam­göngu­áætlun­inni.

„Orðið Foss­vogs­brú kem­ur þar hvergi fyr­ir og nú herma fregn­ir að brú­in eigi að kosta jafn mikið og öll lot­an sem liggja á frá Hamra­borg að Hlemmi,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

„Ég bendi á að lota 1 sem og all­ar aðrar fram­kvæmd­ir upp­færðs sam­göngusátt­mála, hafa ekki farið í gegn­um lög­bundið ferli á Alþingi sem fer með lög­gjaf­ar- og fjár­veit­inga­valdið og ákveður for­gangs­röðun fjár­muna sem ríkið set­ur í sátt­mál­ann. Þannig er sam­göngusátt­mál­inn í heild sinni því marki brennd­ur að hafa ekki farið í gegn­um lög­bund­inn fer­il á Alþingi, þannig að ég lít svo á að ekki er hægt að fara í fram­kvæmd­ir sem eru um­fram fjár­heim­ild­ir sam­göngu­áætlun­ar 2020 – 2024,“ seg­ir Vil­hjálm­ur.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Heimild: Mbl.is