Aðalatriðið að tryggja flugöryggi við Reykjavíkurflugvöll segir Einar Þorsteinsson borgarstjóri. Nýjum gróðri verður plantað í Öskjuhlíð.
Borgarstjóri segir að þau tré verði felld sem þurfi í Öskjuhlíð, til að flugumferð um Reykjavíkurflugvöll verði óhindruð og flugöryggi tryggt. Trén verði felld í áföngum.
Um miðjan mánuð fékk Isavia, sem rekur Reykjavíkurflugvöll, tilkynningu frá Samgöngustofu um að loka þyrfti annarri af tveimur flugbrautum flugvallarins sem fyrst vegna þess að borgin hefði ekki fellt há tré í Öskjuhlíð þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um.
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir lausn í sjónmáli – nýverið hafi embættismenn borgarinnar átt fundi með bæði Isavia og Samgöngustofu sem hafi þar fallist á að trén yrðu felld í áföngum. „Og óska þannig eftir aðgerðaáætlun frá Reykjavíkurborg, hvernig við sjáum fyrir okkur að gera það. Við erum fús til þess. Ef það þarf að fella 1.400 tré, þá gerum við það.“
Einar segir að taka verði tillit til mikilvægis Öskjuhlíðar sem útivistarsvæðis og öðrum gróðri verði plantað þar í staðinn. Hann segir að með kröfu sinni hafi Isavia og Samgöngustofa notað nýtt viðmið um hversu há tré í fluglínu megi vera.
„Við höfum óskað eftir rökstuðningi fyrir því. Núna er verið að vinna málið, við höfum lýst því skýrt yfir að við erum tilbúin að fella þau tré sem þarf – það gerist á einhverjum tíma en aðalatriðið er að þau verði nógu mörg svo það sé ekki verið að tefla sjúkraflugi og innanlandsflugi í tvísýnu.“
Heimild: Ruv.is